Bara pæling hvernig eru menn að nota þetta training dæmi. Sjálfur er ég að þjálfa stóru mennina mína til skiptis í vörn og sókn, næ reyndar aldrei að þjálfa meira en 5 menn í einu þar sem ég þori ekki að hvíla bestu mennina mína í deildarleikjum, Narfason og Talfah. Gengur ágætlega bara, fæ hækkun á einhvern af þessum 5 mönnum í hverri viku. Veit samt ekki hvort ég ætti að splæsa í betri þjálfara, kostar helling af pening og veit ekki alveg hvort það borgar sig. Hvernig gengur ykkur í þjálfuninni?